

fös., 08. maí
|Reykjavík
Framhaldsprófstónleikar - Bríet Vagna
Framhaldsprófstónleikar Bríetar Vögnu, föstudaginn 8. maí í hátíðarsal FÍH kl. 20:00!
Tími & Staðsetning
08. maí 2026, 20:00
Reykjavík, Rauðagerði 27, 108 Reykjavík, Iceland
Nánari upplýsingar
Framhaldsprófstónleikar Bríetar Vögnu, föstudaginn 8. maí í hátíðarsal FÍH kl. 20:00!
Bríet Vagna kemur fram ásamt stórkostlegri hljómsveit þar sem þau munu flytja lög eftir flytjendur á borð við Sam Smith, Beyonce og Stevie Wonder. Flutt verða lög í bland við ballöður, djass, rokk og popp. Áhorfendur mega búast við að heyra bæði tilfinningarík lög ásamt stuði og fjöri.
Ekki láta þessa tónleika framhjá ykkur fara!
Bríet Vagna hefur stundað rythmískt söngnám við tónlistarskóla FÍH síðastliðinn 4 ár. Tónlist hefur ávallt skipað stóran sess í lífi hennar og nýtur hún sín best á sviði, syngjandi með gítarinn í hönd. Hún hefur komið fram á fjölbreyttum viðburðum, þar á meðal bæjarhátíðum, árshátíðum, jólahlaðborðum og í einkasamkvæmum.
Ekki láta ykkur vanta!
