

mið., 22. apr.
|Reykjavík
Framhaldsprófstónleikar - Hreiðar Páll
Framhaldsprófsveislan hefst annaðkvöld miðvikudaginn 22.apríl á tónleikum Hreiðars Páls. Tónleikarnir eru í Hátíðarsal skólans og hefjast stundvíslega kl 20:00, allir velkomnir og hlökkum til að sjá ykkur!
Tími & Staðsetning
22. apr. 2026, 20:00
Reykjavík, Rauðagerði 27, 108 Reykjavík, Iceland
Nánari upplýsingar
Framhaldsprófsveislan hefst annaðkvöld miðvikudaginn 22.apríl á tónleikum Hreiðars Páls.
Hreiðar segir:
"Ég hóf tónlistarnám ungur og lærði fyrst á trompet og franskt horn. Á unglingsárum færði ég mig yfir á saxófón, sem síðan hefur orðið mitt aðalhljóðfæri. Ég hef stundað nám við Tónlistarskóla FÍH, bæði í klassísku trompetnámi og á saxófón í rytmískri deild, þó með hléum á köflum.
Eftir annasöm ár tók ég þráðinn upp á ný í saxófónnámi og er nú að ljúka þessum áfanga sem hefur verið afar ánægjulegur og gefandi.
Á tónleikunum verður boðið upp á fjölbreytta efnisskrá, allt frá ljúfum ballöðum yfir í kraftmikla stórsveitartónlist. Með mér á sviðinu verða framúrskarandi félagar og tónlistarmenn úr Stórsveit Íslands.
Að lokum vil ég nota tækifærið til að þakka þeim kennurum sem hafa miðlað þekkingu sinni og reynslu og veitt mér dýrmæt verkfæri sem munu nýtast mér áfram á tónlistarferðalaginu."
