þriðjudagur, 28. nóvember 2023
Jafnréttisáætlun Tónlistarskóla F.Í.H. 2023-2024
Jafnréttisáætlun Tónlistarskóla F.Í.H. 2023-2024
Markmið jafnréttisáætlunar Tónlistarskóla F.Í.H. er að stuðla að jafnrétti kynjanna, jafnri stöðu allra kynja innan skólans, jafnt starfsmanna sem nemenda. Í öllu starfi skólans verði unnið gegn viðhorfum sem leiða til aðstöðumunar á grundvelli kyns og gegn þeim neikvæðu viðhorfum sem beinast að mismunandi litarhætti og minnihlutahópum.
Stuðlað er að því að hver einstaklingur nýti hæfileika sína og krafta sem best óháð andlegu og líkamlegu atgervi, kynferði, kynhneigð, litarhætti, þjóðerni, trú, búsetu eða efnahag. Stefnt er að því að tryggja hverjum og einum viðfangsefni og menntun við hæfi. Öll kyn eru metin á eigin forsendum, hafa jafna möguleika og sömu réttindi í námi og starfi og til starfsframa.
Jafnréttisáætlun Tónlistarskóla F.Í.H. byggir á lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna sem segja m.a. að kynjum skuli ekki mismunað í skólum og öðrum uppeldisstofnunum og skuli þess gætt í námi og kennslu, starfsháttum og daglegri umgengni við nemendur.
Tónlistarskóli F.Í.H. leggur áherslu á:
Samvinnu og sjálfstæði kynja.
Lögð skal áhersla á eiginleika hvers einstaklings fremur en kynjamun.
Við ákvörðun launa skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað. Öllum skulu greidd jöfn laun og njóta sömu kjara fyrir jafn verðmæt og sambærileg störf. Einnig skulu þau njóta sömu kjara hvað varðar lífeyris-, orlofs- og veikindarétt og hvers konar önnur starfskjör eða réttindi sem metin verða til fjár sbr. 14 gr. laga nr. 96/2000.
Auglýsingar um störf eru ókyngreindar og þess gætt að hafa öll kynin í huga við gerð þeirra.
Við ráðningar skal leitast við að jafna hlutfall kynjanna eftir því sem kostur er.
Endurmenntun:
Tryggt verði að allir starfsmenn njóti sömu möguleika til endurmenntunar og starfsþjálfunar og til að sækja námskeið er haldin eru til að auka hæfni í starfi eða undirbúnings öðrum störfum.
Fjölskylduvænn vinnustaður
Leitast skal við að skapa starfsmönnum tækifæri til að samræma fjölskyldulíf og vinnu eftir því sem kostur er.
Starfsandi og líðan
Lögð er áhersla á góða líðan starfsmanna og góðan starfsanda í skólanum. Allir starfsmenn eiga rétt á því að komið sé fram við þá af virðingu og sæti ekki kynferðislegri áreitni, einelti eða öðru ofbeldi. Ofbeldi af hvaða tagi sem er verður aldrei liðið í skólanum.