top of page

Hildur Guðný

Fræðigreinar

Hildur Guðný nam klassískan píanóleik og jazzsöng við Tónlistarskóla FÍH. Hún lauk tónmenntakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1998 og um haustið sama ár hóf hún störf sem tónfræðakennari við Tónlistarskóla FÍH. Hildur Guðný kennir í dag kennslufræði við kennaradeild skólans og heldur þar utan um æfingakennslu ásamt því að kenna tónheyrn og hrynþjálfun í grunndeild. Hrynþjálfunarfræðin lærði hún í Rytmisk Musikkonservatorium (RMC) í Kaupmannahöfn. Hildur Guðný vinnur mjög mikið í verkefnum tengdum sköpunarþætti tónlistarkennslu og er einn af frumkvöðlum þess háttar kennslu á Íslandi. Hún starfar sjálfstætt við skapandi tónlistarkennslu á öllum skólastigum í almennum skólum jafnt sem í tónlistarskólum. Hildur vinnur einnig með hópefli í skólum og fyrirtækjum þar sem hún hristir saman hópa af öllum aldri, stærðum og gerðum með hrynþjálfun, trommuslætti, söng og dansi.

698 3263

Hildur Guðný
bottom of page