Rafrænn tónlistarskóladagur
- Þóra Sif Svansdóttir
- 8 hours ago
- 1 min read

Rafrænn tónlistarskóladagur 26. febrúar 2026.
Kynnið ykkur námið sem tónlistarskóli FÍH býður uppá.
Fylgist með okkur á facebook og instagram.
Dagur tónlistarskólans verður haldinn fimmtudaginn 26. febrúar. Venju samkvæmt verður þessi dagur rafrænn og tilgangur hans er að veita verðandi nemendum og öðrum innsýn í það nám og tónlistarlíf sem hér fer fram. Dagurinn verður í umsjón nemendafélags og starfsfólks skólans. Þar fer fram kynning á kennurum og nemendum við skólann, hvaða aukafög eru í boði og samspilin heimsótt. Einnig verður kynning á show-um sem hér hafa verið haldin undanfarin ár og show vorannar verður einnig kynnt. Þessi dagur fer fram á facebook skólans (Tónlistarskóli FÍH) og Instagram (fihskoli) og dagskráin fer fram milli kl. 16:00-20:00 og hvetjum alla til að fylgjast með og sækja um fyrir næsta ár!








Comments